Draugagangur á Halloweeeeeeeen!

IMG_4655í gær var Halloween. Við gáfum grímuklæddum börnum ullabjakk í miklu magni, reyndar nokkrum fullorðnum líka. Alltaf pínku krípí þegar fullorðið fólk kemur eitt og biður um nammi. Einn kom með grímu Hannibals Lecters stútungskall. Elna mexíkóska húshjálpin sagði mér að ég skyldi reyna að ná tali af framliðnum laust eftir miðnætti. Í hamaganginum gleymdist það svo nú verð ég að bíða í eitt ár eftir því að ná sambandi við hinn heiminn. Best að hafa spurningarnar á hreinu svo maður verði ekki eins og bjáni ef samband næst og lendi t.d. í því að spyrja um veðrið!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Er þetta framliðinn á myndinni?

Hallmundur Kristinsson, 1.11.2007 kl. 22:31

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Einn náði mér óbeðinn í Frakklandi nýlega. Læt það duga. Bogga um það seinna. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.11.2007 kl. 22:50

3 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Hallmundur...það er von þú spyrjir!

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 2.11.2007 kl. 02:46

4 Smámynd: Fríða Eyland

þetta er Glanni ég þekki hann á hollningunni eru verðlaun ?

Fríða Eyland, 3.11.2007 kl. 03:11

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er verulega spúkí mynd.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.11.2007 kl. 23:48

6 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

já, sammála. spúkí mynd hjá þér.

AlheimsLjós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 4.11.2007 kl. 20:20

7 Smámynd: Heiða  Þórðar

vægast sagt spúkí....mynd

Heiða Þórðar, 4.11.2007 kl. 23:40

8 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Já, spurðu bestu miðlar eins og Hafsteinn ekki um veðrið? Mig minnir það, en það er pottþétt að betra verður að fara með minnismiða. Ég mun strax fara að skrifa niður, það er aldrei að vita uppá hverju maður tekur., eins held ég að betra sé að týna ekki minnismiðanum.....

Sólveig Hannesdóttir, 5.11.2007 kl. 21:42

9 identicon

Mér finnst þessi mynd frábær.

Ragga (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 21:48

10 Smámynd: Sólveig Hannesdóttir

Held áfram að hlusta á söguna.

Sólveig Hannesdóttir, 5.11.2007 kl. 21:55

11 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Ótrúlega fyndin mynd

Svala Erlendsdóttir, 8.11.2007 kl. 13:03

12 identicon

Þessi mynd er greinilega tekin á miðilsfundi....sé þarna veru sem er með kveðju að handan. Þessi vera er ekki úr efnisheiminum svo mikið er víst. Eru einhverjar krásir á matarborðinu? Megum við eiga von á því að fá fleri uppskriftir bráðlega??

Berglind (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 17:24

13 Smámynd: Ragnheiður

Hehe og á að gefa stútungsköllum sem líta út eins og mannætur nammi ? Ekki þar fyrir,ég hefði ekki þorað að sleppa því.

Myndin er rosaleg.

Ragnheiður , 11.11.2007 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband