Gamalt og gott

Nú styttist óðum í að ég verði léttari. Það eru orð að sönnu því ég minni helst á ofalda kind um þessar mundir. Það er í raun hreint furðulegt að ég skuli halda jafnvægi.

Næturnar eru að mestu svefnlausar. Ég sef í sitjandi stellingu, er sífellt að vakna og er svo svona að smá-leka niður eftir rúminu eftir því sem líður á nóttina.

Mér er gersamlega fyrirmunað að snúa mér af eigin rammleik, þvílík er fyrirferðin, svo að bóndinn er vakinn með reglulegu millibili til að snúa gripnum.

Og það er enginn hægðarleikur skal ég segja ykkur.

Ég á bágt með að trúa fólki sem segir að því finnist þungaðar konur fallegar. Þungaðar konur eru fyrst og fremst sprenghlægilegar.

Ég er farin að leggja fæð á kvenfólk sem talar fjálglega um það hversu dásamlegt það sé að vera barnshafandi. Mér líður sjaldan verr en einmitt þegar ég hef gengið með börn. Eiginlega alveg hreint bölvanlega.

Ég mun eignast barnið á spítalanum UCLA sem er háskólasjúkrahús og því næsta víst að þar verður margt um manninn. Gott að maður er giftur skemmtikrafti sem mun þá væntanlega geta stytt læknanemum stundir með gamanmálum milli hríða. Ætli ég ætti ekki að baka eitthvað?

Mér var úthlutað nýjum lækni á dögunum sem mun fylgja mér síðustu sporin. Óðinn einn veit hversu mörgum börnum hann hefur fylgt í heiminn, þau skipta eflaust þúsundum.

Stofan hans var heldur fornfáleg, innréttingarnar svona frá því rétt um stríð og umhverfið allt minnti helst á leikmynd. Í Hollýwood er það nefnilega svo að maður getur átt það á hættu hvar sem er að vera staddur í leikmynd. Svo að ég greip tímarit sem lágu frammi til að ganga úr skugga um að þau væru frá árinu sem rétt er gengið í garð. Það reyndist vera og mér leið aðeins betur.

Það eru þá sennilega einhverjar mannaferðir um stofuna hugsaði ég með mér, allavega kemur pósturinn ennþá hér við.

Nú leið og beið. Það virtist ekki vera mikið lífsmark á stofunni. Við vorum þau einu sem biðum og ekki virtist vera margt um manninn innan við glerið.

Ég hef nú ekki hingað til haft fordóma gagnvart mér eldra fólki, öðru nær. Mér var uppálagt sem barni að bera virðingu fyrir starfs- og lífsreynslu fólks og hef reynt að hafa það að leiðarljósi í gegnum lífið.

Ég verð hins vegar að viðurkenna að það runnu á mig tvær grímur þegar ég hitti þennan heldri borgara, því mér finnst alveg eins líklegt að honum muni ekki endast aldur til að sjá þetta barn líta dagsins ljós.

Ég giska á að hann sé um áttrætt, jafnvel eldri.

Mér létti hins vegar stórum þegar doktorinn hafði það á orði í upphafi skoðunarinnar að hann liti á meðgöngu sem eðlilegan hlut og að hann hvetti mig til að halda áfram að lifa lífinu á sem eðlilegastan máta. Það er nefnilega svo, í þessu high-tech-samfélagi sem við búum í, að það er búið að gera meðgöngu og fæðingu að þvílíkum iðnaði að það er undarlegt að nokkur leggi yfirleitt í það að eignast börn.

Hann sagði síðan sposkur í gegnum skeggið að ef mér hugnaðist að eiga náin samskipti við bóndann skyldi ég endilega gera það en klykkti svo út með að segja að ef mér væri það á móti skapi skyldi ég hreinlega berja hann í hausinn og hló við.

Mig langaði til að segja honum að það væri ekki nokkur hætta á að til þess kæmi og vísa þá til Dúmbó-náttfatanna og brjóstsviðataflnanna sem fylgja mér flestar stundir en sat á mér.

Fannst einhvern veginn hálfóviðeigandi að klæmast við gamalmennið þótt hann hafi auðvitað boðið upp á það.

Sjálf líkamsskoðunin var óvenjulega ítarleg miðað við það sem ég hef áður upplifað. Ég tíundaði þetta við tengdamóður mína í síma eftir á en hún var að eiga sín börn í byrjun sjöunda áratugarinns og hún tjáði mér að svona hefðu hlutirnir alltaf verið gerðir í den. Og átti þá við alllöngu áður en hún hafði gengið með sín börn.

Ég á stefnumót við gamla í næstu viku... blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband