Örn segir ennfremur:
Örn heldur áfram:
"Þórhallur (Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri) vildi breytingar," segir Örn. "Auðvitað erum við ekki sáttir, en hvað eigum við að gera? Við erum fimm verktakar sem erum að vinna fyrir Sjónvarpið og ef dagskrárstjórinn vill breytingar þá verður svo að vera,"
Slík er samstaða þeirra spaugstofumanna eftir ríflega 20 ára samstarf. Og tilsvar Arnar Árnasonar En hvað getum við gert? bergmálar um gervallt landið...
Hvað getum við gert?...Hvað getum við gert?...Hvað getum við gert?....
Athugasemdir
Furðulegt mál þessi uppsögn og enn furðulegri "samstaða".
Marta B Helgadóttir, 13.9.2007 kl. 19:46
Hætt að vera Spaugstofan.........? Bara spyr. Lélegur Örn. Frekar meira svona eins og mávur á haug.....altso....öskuhaug.
Halldór Egill Guðnason, 13.9.2007 kl. 19:49
Þeir vildu bara sjálfir losna við Randver! Annars hefðu þeir allir hótað að hætta og þá hefði ekki orðið nein Spaugstofa. Og þá hefði Þórhallur lúffað.
Sigurður Þór Guðjónsson, 13.9.2007 kl. 19:52
Við vitum ekkert um hvernig þetta er allt til komið en mér finnst ákveðinn sjónarsviptir að Randveri. Hann er svo mikill hluti af þessum hópi.
Markús frá Djúpalæk, 13.9.2007 kl. 19:59
Mér finnst nú sennilegast að einhver ástæða sé fyrir þessu sem ekki þyki eiga erindi í fjölmiðla. Mönnum er nú ekki alltaf greiði gerður með því að býsnast yfir hlutum án þess að þekkja málavöxtu.
Hallmundur Kristinsson, 13.9.2007 kl. 20:14
satt er það Hallmundur....þakka ábendinguna.... ef þetta hefur verið „vamm“ hjá mér samanber...
vinur er sá er til vamms segir ....
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 13.9.2007 kl. 20:25
Nú kom upp í mér rímáráttan:
Vinur er sá er til vamms segir.
Vitur er sá er þegir.
Frakkur er sá er framsegir.
Frægðar oft þröngir vegir.
Hallmundur Kristinsson, 13.9.2007 kl. 20:55
Þetta gæti verið mótvægisaðgerð hjá RÚV.
Gísli Ásgeirsson, 13.9.2007 kl. 20:55
Eða kolefnisjöfnun....... nei, bara spaug.
Hallmundur Kristinsson, 13.9.2007 kl. 21:13
veskú Hallmundur!
Vinur góður víst þú ert
og viturlega segir:
Varast skaltu hnjóðsorð hvert,
hér eftir þú þegir!
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 13.9.2007 kl. 21:39
Spaugstofan verður ekki söm án Randvers. kanski verður hún bara ekkert skemmtileg.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.9.2007 kl. 22:05
Ég kem ekki að tómum kofunum.
Kunngert er spursmál göfugt;
hvort það að ríða klofunum
kosti raft - eða öfugt!
Hallmundur Kristinsson, 13.9.2007 kl. 22:37
Öfugt!!!
Halldór Egill Guðnason, 13.9.2007 kl. 23:27
Hvað er þetta Steina ætlarðu ekki að svara Hallmundi?
María Kristjánsdóttir, 13.9.2007 kl. 23:40
Enginn þeirra Randver ver,
víst mun grínið kárna.
Hver og einn að baki ber
Bræður Arnar Árna
Jón Steinar Ragnarsson, 14.9.2007 kl. 02:57
Kom mér verulega á óvart!... svona prívat og pers.
Heiða Þórðar, 14.9.2007 kl. 10:55
Getur þetta tengst eitthvað inn í bíl Páls og eða laun hans, þeir verða náttlega að spara eitthvað.. :)
DoctorE (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 12:34
Randver er búinn að vera
við því er ekkert að gera.
Ránfugl er Örninn og étur
álíka mikið og Pétur
Bergur Thorberg, 14.9.2007 kl. 14:02
Þetta er bara typískt íslenskt: Ég redda bara mér og er sama um hina. Hér hugsar hver um sjálfan sig númer eitt og það er aldrei nein samstaða. Fólki er slétt sama um vini sína - ef það bara græðir sjálft, þá verður bara að hafa það þótt einn og einn vinur liggi "í valnum". Þetta svar Arnar var honum til skammar og í einhverju blaðanna svaraði hann spurningu ... og hló.
Anna (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 18:18
Jú Maja, nú svara ég Hallmundi.
Þú um yður frá þér til yðar
Að klæmast er karlanna siður
sem kvenfólki finnst heldur miður.
Ef þú ekki hættir
og handsalar sættir
þá hunsa ég framvegis yður.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 14.9.2007 kl. 18:21
Hér er mín framrétta sáttarhönd:
Illt er að vera utangátta.
Ætla mér því að leita sátta;
hegðunar vil ég hefja námið
hlusta því mun á læknaklámið!
Hallmundur Kristinsson, 14.9.2007 kl. 19:18
Ég man ekki hvað ég ætlaði að segja.
Laufey Ólafsdóttir, 14.9.2007 kl. 22:58
Já þetta er orðin frekar þreyttur þáttur hjá þeim félögum. Er ekki löngu komin tími til að eithvað að þessum yngri grínurum fái að spreyta sig með vikulega þætti í sjónvarpi allra landsmanna. Má þar nefna nögn einsog sigurjón og Jón Gnarr og Þorstein Guðmundsson grínara. Það mætti kannski hafa tvo grínþætti í viku og færa þá spaugstofuna yfir á Sunnudagskvöld. Ég er sammála því að ef rétt reynist að Randver er farinn þá er þetta ekki lengur spaugstofan.
Ég á gamla videospolu með Spaugstofunni þar sem þeir voru að gera grín Leiðtogafundinum á Höfða. Frekar fyndið að horfa á þetta í dag.
Arnar (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.