Góðir hlustendur...tilkynning!

IMG_3849Nú fyrir stuttu hóf göngu sína Útvarpsstöðin Ólína.

Mér finnst undirtektir hafa verið með afbrigðum dræmar og kenni því um að fáir viti enn sem komið af þessari óháðu útvarpsstöð frekar en þeirri hugsanlegu orsök að fólki þyki efni stöðvarinnar lélegt.

Sú skýring þykir mér afar ólíkleg því ekkert er svo lélegt að því megi ekki venjast, ef maður leggur sig fram, samanber...og svo mætti lengi telja.

Dagskrá septembermánaðar verður sem hér segir: 

Flutningur útvarpssögunnar Læknaklám. Höfundur: Ólína Þorsteinsdóttur.

Tilfinningaþrungin örlagasaga um starfsfólk í heilbrigðisgeiranum. 

Lesari: Karl Stefánsson

 

Söguna er hægt að hlýða á í tónlistarspilaranum hér á vinstri hönd sem heitir hér ,,Útvarp Ólína"

Kaflarnir munu birtast eftir hentugleikum. Góðar stundir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég hélt að blessað læknaklámið gæti ekki batnað. En þessi upplestur! Hvílík dásemd! Mér finnst ég orðin 6 ára á ný, að hlusta á útvarpssöguna á gömlu Gufunni

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.9.2007 kl. 21:01

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hef drukkið í mig hvert orð fyrir löngu. Bíð í andnauð eftir meiru.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2007 kl. 23:17

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Kem aftur og hlusta þegar netið hjá mér er hætt að detta út á 5 mín fresti þvílíkt antiklæmax.

Hlakka til!

Laufey Ólafsdóttir, 13.9.2007 kl. 00:42

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Látlaust intróið og lokastefið gefur þessu eitthvað svo kúltiveraðan blæ... Þarna mætast menningarraumar Garðarshólma og Amaríkis í saumlausum sambræðingi.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.9.2007 kl. 03:23

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ætti að fá hlustendaverðlaun.  Hangi hér stöðugt hlustandi

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 13:49

6 Smámynd: Bergur Thorberg

Til hamingju með nýju stöðina. Ég bíð spenntur Steinunn mín. 

Bergur Thorberg, 13.9.2007 kl. 14:55

7 Smámynd: Fanný Guðbjörg Jónsdóttir

Ég hef ekki komið einu einasta í verk síðustu 2 tímana. Hef setið hér spennt fyrir framan tölvuna, verið mál að míga síðasta einn og hálfann, þurr í hálsinum með sperrtar varir, stífann kjálfa  og beðið til guðs að Franklín sé heill á húfi...   Var að uppgvötva þetta blogg og ég verð að segja að þetta er bara með bestu spennusögum sem ég hef lesið í góðann tíma.

Hafið það gott í Ameríku.

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 13.9.2007 kl. 15:20

8 identicon

Til hamingju. Þetta er alveg dásamlegt mér líður eins og ég væri 7 ára,þegar við vorum límd við útvarpið.

sigurbjörg Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 10:58

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta er bara alveg eins og Andri Snær segir....það fer hugmynd á flug og lendir í kolli nokkurra á sama tíma...en bara örfáir sem hrinda í framkvæmd. Útvarpsstöðin mín fer líka alveg að fara í loftið.......en það verður ekkert æsispennandi læknaklám eins og hjá þér og svo hef ég engan glæpon ti að lesa fyrir mig!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband