Pínlegt Kastljós...

 Er ekki hægt að senda víkingsveitina heim til hans Villa til að leita að minnismiðanum?

Sorglegur er hann fyrrum borgarstjóri. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Og sorglegir líka hinir, hvað voru þeir að gera á leynifundi heima hjá borgarstjóranum?

María Kristjánsdóttir, 15.10.2007 kl. 21:32

2 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Já, þetta er allt að verða afar pínlegt.

Hallmundur Kristinsson, 15.10.2007 kl. 22:44

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Róleg, þetta er bara byrjunin.....

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.10.2007 kl. 00:12

4 Smámynd: Fríða Eyland

Við fáum engin svör Jenný hvað með laugardagskvöldið hjá Evu. Færslan þín "drottningarviðtalið" er samt dæmalaust góð, ég kíki á hana aftur. Víkingasveitin mun ekkert finna hjá villa, Steinunn, kannski það hafi verið kveikt í henni!! annað eins getur nú brunnið.

En pínlegt er það orðið, það er satt

Fríða Eyland, 16.10.2007 kl. 03:47

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það þarf enginn að að segja mér að allt þetta klúður sé fyrir yfirsjónir eins manns, sem virðist vera með borderline Alsheimers. Hér ljúga allir hver í kapp við annann bæði Júdas og Brútus. Það er hinsvegar gott að þessi staða sé komin upp, því nú þyrlast skíturinn upp á báða bóga og þjóðin fær loks að vita hversu gerspillt stjórnsýslan er.

Menn voru teknir kámugir af súkkulaði út undir eyru og með báðar hendur í nammiskálinni og nú reyna þeir allir sem einn að þræta fyrir að hafa fengið sér. 

Jón Steinar Ragnarsson, 16.10.2007 kl. 05:04

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Jón Steinar hintar að því, að Vilhjálmur gæti verið með byrjun elliglapa.  Það veit ég ekki en hitt er morgunljóst, að Bjarni segir ekkert voða mikið satt í þessu viðtali.

Segist ,,hafa verið sóttur" út í bæ til að vera í forsvari fyrir REI.  Endar svo sem hjú hjá sömu húsbændum og áður voru hanns herrar í Glitni.

Svo eru ,,fulltrúar eigenda" þeir Hjörleifur og Haukur, heldur hjáróma, ef horft er aftar.

Sagði að hann hefði ,,ekkert sérstaklega" verið að spekulera í orkumálunum, þar sem hann hefði ekki mikla þekkingu á þeim.  ÞEtta stangast á við fínu viðtölin við hann á róðrarbátnum t.d. hvar hann segir orkumálin og útrásarmöguleika okkar afar spennandi.

Menn verða að muna ögn aftur í tímann.

Svo er einnig um faðmlög og (krókodíla)-tár Alfreds og Binga --sömu menn og fyrir ekki allmörgum mánuðum, töldu hvern annan til óferjandi skúrka.

Miðbæjaríhaldið

man enn aftar.

Bjarni Kjartansson, 16.10.2007 kl. 11:26

7 identicon

Sæl veriði, 

 Í öllum öðrum löndum Evrópu væri hér farin af stað lögreglu rannsókn á málefnum þessara manna sem þarna virðast vera að hjálpa sér sjálfir að verðmætum almennings og sleppa svo alveg við allar skammir eða sektir eða ábyrgð.

Ísland = Óspylltasta sjórnkerfi í heimi? Hvernig er sá mælikvarði? er það ekki fjöldi spyllingamála sem ákært er í? jú það er einmitt þannig. Í Íslandssögunni allri samanlagðri hafa einungis 2 menn verið látnir bera ábyrgð á pólitískum gjörðum sínum og þeir eru:

Guðmundur Árni Stefánsson sem þurfti að segja af sér vegna þess að hann réð vin sinn í embætti.

og

Árni Johnsen sem stal byggingarefni.

og þar með er það upptalið.

Þetta þýðir sem sagt að allir aðrir stjórmálamenn á íslandi eru hvítþvegnir englar og þar á meðal Finnur Ingófsson fremstur í flokki hvítþegina engla.

Ég hreinlega elska þetta land og þessa þjóð... enda erum við hamingjusömust í heimi.

Góðar stundir.

Kv,

Umhugsun. 

Umhugsun (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 11:46

8 identicon

Taumlaus peninga og valdagræðgi Bjarna Ármannssonar ríður ekki við einteyming og rífur aðra með sér niður í svaðið. Bjarni er alltaf að græða meira og meira en hann er alltaf að verða minni og minni kall. Brosið er horfið af barnslegu andlitinu.

Stefán (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband