Færsluflokkur: Bloggar
23.7.2007 | 22:23
Viðhaldið mitt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
23.7.2007 | 22:08
Töffarar Los Angeles!
http://sverrirt.blog.is/blog/sverrirt/
Atti kost a ad hitta þessa ultratöffara sem eru i heimsreisu a motorhjolum en hafði ekki tima,þvi miður.
Það er lygilegt hvað husmoðurstarfið er timafrekt!!!
broddstafirnir eru horfnir af tölvunni minni....hvad er i gangi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.7.2007 | 19:55
Dularfulla Hótelherbergið!
Við gistum á sveitahóteli s.l. laugardagsnótt. Við komum á hótelið rétt eftir miðnætti og á móti okkur tók heldur svona utan við sig næturvakt. Hún bauð okkur velkomin og rétti okkur lykilinn að herberginu okkar. Herbergi 340. Þegar þangað var komið blasti við okkur heldur sérkennileg sjón.
Á gólfinu lágu rósablöð og leiddu í einhverskonar sveig að rúminu sem var skreytt með blómahjarta á miðri sæng úr lifandi afskornum blómaknúppum.
Við ákváðum að það væri tilvalið kodakmóment.
Ég er nú svo órómantísk eitthvað að mér fannst þetta nú heldur óþrifalegt og safnaði saman blómaskrautinu og setti í ruslafötuna.
Þá rak ég augun í brúðarslör sem hafði verið lagt yfir sófann og þá fóru að renna á mig tvær grímur.
Ég ákvað samt að prófa slörið og ræddi við bóndann að þetta væri nú með allra sérkennilegustu hótelum sem við hefðum gist á. Rómantíska Þemað var nú svona alveg á mörkunum fannst okkur.
Það tók síðan steininn úr þegar við rákum augun í miða á náttborðinu sem stóð á Congratulations!
Ég fór því niður í lobby og utangátta afgreiðslustúlkan spurði hvort ekki væri allt í lagi og ég sagði henni að það væri ekki yfir neinu að kvarta en okkur hefði fundist skreytingarnar svona heldur óvenjulegar en hefðum svo sem ekkert við það að athuga. Lobbykonan fraus og sagði síðan stundarhátt: ,,Room 340? Jesus, do you mind if I move you guys Ég sagði henni að það væri allt í lagi en þurfti að viðurkenna að ég hefði safnað blómunum saman og hent í ruslið. Þá sagði örvæntingarfulla lobbykonan:
,,No, you did not!. Oh my god! Do you think I can arrange them again?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.7.2007 | 08:43
Hollywood Bowl og Keflavík mætti!

Cool Britannia! var yfirskrift tónleikanna.
Tónskáldið/ Stjórnandinn/Útsetjarinn/Músíkkantinn Veigar er lítillætið uppmálað og lét sér fátt um finnast að mér fyndist stórmerkilegt að LA Philharmonic væri að spila útsetningar eftir hann. Enda hefur hann oft gert útsetningar fyrir sveitina áður án þess að hafa hátt um það í íslenskum fjölmiðlum.
En tónleikarnir byrjuðu á Bond syrpu...Goldfinger...Diamonds are forever....o.s.frv.
Stjórnandinn Bramwell Tovey var ferlega skemmtilegur og fyndinn,enda Breti, eiginlega skemmtilegri en prógrammið fyrir hlé...spes. Hann þakkaði Ameríkönum meðal annars fyrir að hafa tekið þau David og Viktoríu Beckham að sér, enda breska þjóðin dauðfegin að vera laus við þau skötuhjú að því er virðist. Síðan var syrpa tileinkuð Noel Coward sem var nú svona og svona...kannski ekki alveg minn tebolli.
Eftir hlé byrjuðu tónleikarnir fyrir alvöru og séníið Jamie Cullum kom á svið. Hann er pínu lítill ca. 1.50. Margur er knár þó hann sé smár. Hann alveg hreint ævintýralega sjarmerandi og skemmtilegur listamaður .

imagesJamie er flottur píanisti, eiginlega alveg frábær og ég var að reyna að fatta alla tónleikana á hvað tónlistin hans minnir mig á ...smá Billy Joel...smá Elton John ...smá Pat Metheny ...smá Elvis Costello...fullt af jasstöktum og svo bara alveg fullt af orginal bragði.
Án þess að ég sé nokkuð að halla á hlut Veigars var hápunktur tónleikanna flutningur (söngur/ píanó) Jamie Cullum á Cole Porter laginu "Ive got you under my skin" sem Sinatra gerði frægt....Töfrandi! Og þessi gamla ,,lumma" varð eins og ný í meðförum hans. Vel gert.
Þegar við gengum út var skilti sem tiltók áhorfendafjölda þetta kvöldið í Hollywood Bowl....8772.....
Veigar hafði á orði: Keflavík Mætti!....ekki fjarri lagi ...þó að undirrituð sé nú ekki með höfðatölu í Keflavík svona á hraðbergi....
p.s
Veigar er Keflvíkingur.
nesti kvöldsins:
Sutter Home Pinot Noir, Sutter Home Gewurztraminer, og Fat Tire bjór.
Pitabrauð fyllt með heimagerðu Hummus, grilluðum paprikkum,rucula, rauðlauk og svörtum ólífum
Snittubrauð með sýrðum/grófu sinnepi/sólþurrkuðum tómötum og avacado/bacon/tómötum.
Íslenskt Síríus súkkulaði...Jarðaber og bláber!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.7.2007 | 22:44
Meiri ást fyrir Aðalheiði eftir William Butler Yeats!
WHEN YOU ARE OLD
WHEN you are old and grey and full of sleep,
And nodding by the fire, take down this book,
And slowly read, and dream of the soft look
Your eyes had once, and of their shadows deep;
How many loved your moments of glad grace,
And loved your beauty with love false or true,
But one man loved the pilgrim Soul in you,
And loved the sorrows of your changing face;
And bending down beside the glowing bars,
Murmur, a little sadly, how Love fled
And paced upon the mountains overhead
And hid his face amid a crowd of stars.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.7.2007 | 18:45
The Astronaut Farmer og Draumljóð eftir W.B.Yeats
Sá þessa afbragðsfínu mynd um daginn. Leikararnir Billy Bob Thornton og Virginia Madsen alveg stórgóð.
Myndin fjallar um mann sem dreymir um að komast út í geiminn.
Skilaboðin í myndinni eru skýr... Ef þú átt þér ekki drauma þá er lífið einskis virði!
Mynd fyrir alla fjölskylduna. Og svo eitt fallegt ljóð eftir Dobbeljú Bí Yeats.
Cloths of heaven
Had I the heavens embroidered cloths,
Enwrought with golden and silver light,
The blue and the dim and the dark cloths
Of night and light and the half light,
I would spread the cloths under your feet:
But I, being poor, have only my dreams;
I have spread my dreams under your feet;
Tread softly because you tread on my dreams.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.7.2007 | 17:22
Hitabylgja á Íslandi 2
Hér kemur uppskriftin af Mintulímonaðinu sem margir hafa beðið eftir í ofvæni.
Rífa niður sítrónubörk af 1 sítrónu
Safi úr 4 sítrónum
1 expressóbolli sykur
væn grein af mintu
Sett í pott og soðið niður í semí-sýróp 4-6 mínútur ca.
sigtað í könnu sem er fyllt með klökum að einum þriðja og fyllt með vatni.
skreytt með sítrónusneiðum og mintulaufum.
Skál!
Ég vona að þetta slái á mesta þorstann!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2007 | 01:58
Er Emelía hætt í NYLON ???? Hvað er að ske í´essum heim!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.7.2007 | 01:53
Hitabylgja á Íslandi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.7.2007 | 04:18
Allt er gott í hófi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)