Færsluflokkur: Bloggar

Klukk!

Halldór klukkaði mig...og ef ég skil þetta rétt þarf ég að gefa upp átta persónulegar upplýsingar um sjálfa mig.

Og hefst þá leikurinn:

1. Melrakkaslétta finnst mér fegursti hluti landsins.

2. Ég er hrædd á sjó.

3. Hef lesið þrjár sjálfsævisögur dverga...tek það fram að þær voru í fullri lengd.

4. Hef mjög sundurleitan tónlistarsmekk...eiginlega borderline.

5. Ættleiddi ömmu í perú á námsárunum í London og hætti að borga með henni þegar ég hætti námi. Og er með ævilangan móral.

6.Las bókina ,,þegar vonin ein er eftir" (ævisaga franskrar gleðikonu) þegar ég var níu ára. Afar uppbyggileg lesning.

7. Hef mikinn áhuga á óhefðbundnum lækningum.

8. Þarf stöðuga tilbreytingu í lífið og hef sérstakt yndi af flutningum. Að festa rætur einhverstaðar finnst mér hræðileg tilhugsun.


Matur!

avocadosalad 1

 Rucula

 Spínat 

 Avocado

 Blóðgreip

 hráar valhnetur

 þurrkuð cranberries...

salatsósa: 2 mtsk geitaostur, 1 mtsk jómfrúarolía, 1 mtsk hrísgrjónaedik, 1 tsk hunang , 1 pressað hvítlauksrif, sjávarsalt og pipar. Þessu er öllu skellt saman og borið fram sér.


Barnaþrælkun á Íslandi

 Ástæða er til að óska Breiðavíkursamtökunum til hamingju með daginn

www.breidavikursamtokin.is

hvet alla til að lesa frásagnirnar sem þar eru birtar...

það er heldur ömurlegur vitnisburður um starfsemi hins opinbera í málefnum barna á árum áður...

Hvað verður um íslensk börn í dag þegar  heimilisaðstæður leyfa ekki að þau búi hjá sínum nánustu...veit það einhver?


Læknaklám 4. kafli

Ég tek eftir því að enn eru erótískar sögur efstar á vinsældalista moggabloggsins. Ég hóf fyrir stuttu að skrifa sögu sem ég kalla Læknaklám. Þrátt fyrir litlar undirtektir og engar vinsældir sögunnar hef ég ákveðið að halda ótrauð áfram og birtist því hér fjórði kafli.

Fyrstu þrjá kaflana má finna hér á blogginu mínu en sagan er þess eðlis að hana má lesa hvort sem heldur er afturábak eða áfram. Ekki er hér um stílbragð að ræða heldur er sagan einfaldlega svo rýr að efnisburðum að litlu skiptir hvernig hún er lesin og sennilega er fólki hollast að lesa hana alls ekki.

 

4. Kapítuli 

 

Járngerður  Brynja mataði aldraða embættismanninn af stakri natni.  Það þurfti bæði fagmennsku og lagni til að koma vellingnum ofaní aldraða embættismanninn því hann var á mörkum svefns og vöku sökum þeirra feiknarlegu lyfjaskammta sem æddu um æðar hans. Vellinginn hafði Járngerður lagað sjálf eftir uppskrift úr dönsku sjúkraliðablaði.

Aldraði embættismaðurinn var  ennþá gríðarlega máttfarinn og hugsaði Járngerður Brynja með sér að hún þyrfti sennilega að veita manninum rúmbað að máltíð lokinni. Það væri óðs manns æði að ætla að hann gæti gengið óstuddur inn á baðherbergið svona stuttu eftir aðgerð. Hvað ef honum myndi skrika fótur eða villast um afkima spítalans. Á það var hreinlega ekki hættandi, því Járngerður vissi sem var að þjóðaröryggi væri í húfi.

Járngerður Brynja vildi líka fá að annast hann ein. Að baða aldraða embættismanninn var nokkuð sem hún vildi ekki fyrir nokkurn mun deila með starfsystrum sínum. Hana langaði í eitt augnablik til að klæða gamla manninn úr baðmullarfötunum og umvefja hann örmum eins og barn. Hún vissi sem var að þetta gæti hún ekki látið eftir sér því það samræmdist ekki siðareglum starfsmanna í heilbrigðisgeiranum. Hún yrði þrátt fyrir fýsnir sínar að sýna fyllstu fagmennsku í allri umgengni við aldraða embættismanninn.

Allt í einu veitti hún því athygli að annar fótur aldraða embættismannsins stóð undan sænginni. Fölur nær hárlaus grannur leggur og hvítur sokkur merktur spítalanum. Ekki ólíkt biðukollu á haustdegi lífs síns. Járngerður fylltist losta við þessa sýn og hjartslátturinn varð örari. Hún lagði frá sér vellinginn á náttborðið og hneppti varlega frá efstu tölunni á níðþröngum sloppnum sem hún klæddist.
Járngerður veitti því athygli að það færðist roði í kinnar aldraða embættismannsins og henni snögghitnaði allri. Aldraði embættismaðurinn virtist vilja segja henni eitthvað því hann reyndi í sífellu að mynda orð með bláleitum vörunum.
Járngerður gat ekki vel greint hvað hann vildi henni þó hún væri afbragðsgóð í varalestri en sætti lagi og spurði hann hvort honum væri það nokkuð á móti skapi að hún baðaði hann í einrúmi. Aldraði embættismaðurinn muldraði fáein orð til samþykktar og virtist frekar hlakka til baðsins.

Járngerður fylltist eftirvæntingu við tilhugsunina.
Að fá að strjúka aldraða embættismanninum með ylvolgum þvottapoka hátt og lágt.
Hún þeyttist fram á gang og hljóp við fót inn á línið. Hún blístraði lagstúf úr ítalskri gamanóperu sem hún  hafði séð sem barn og hló með sjálfri sér.
Þegar inn á lín var komið tók hún til tvö drifhvít þvottastykki til ofanþvotta og fjóra fölgræna svampa til neðanþvotta. Svo mikill var gassagangurinn í Járngerði að minnstu mátti muna að hún fengi yfir sig bala með sterkri klórblöndu sem einhver hafði skilið eftir í efstu hillu.

Járngerður staðnæmdist við latexhanskaboxið og ákvað að láta þá eiga sig í þetta sinn.
Hún vildi veita aldraða embættismanninum persónulega þjónustu ef þetta bað yrði hans síðasta.



Maðurinn minn veit ekki að ég á afmæli!

KrabbiKrabbi: Næstu 24 stundirnar tekurðu ákvarðanir sem verða skrifaðar í stjörnurnar. Ef þú veist ekki hvað gera skal, reyndu þá að hjálpa öðrum með því að hjálpa sjálfum þér.
Svona hljómar stjörnuspáin mín 2.júlí í Morgunblaðinu.
 Hafiði einhverjar hugmyndir handa mér? Mér finnst ég nefnilega ekki vera neitt sérlega hjálparþurfi.
Kannski að ég hjálpi sjálfri mér með því að hjálpa Stefáni út með ruslið!
Annars man hann ekki eftir því að ég á afmæli í dag  þannig að kannski ætti ég að hjálpa honum við það að rifja upp afmælisdaginn minn. Mér yrði kannski einhver hjálp í því.
Stefán er hinsvegar búin að skeggræða við mig sinn eigin afmælisdag sem er ekki langt undan.
Einnig fengum við símtal þar sem honum var óskað til hamingju með frúna og hann var samt sem áður engu nær.
Annars á þessi stjörnuspá við okkur bæði þannig að þetta er sennilega pattstaða.

Shall I compare thee to a summer´s day?

shak3
Shall I compare thee to a summer's day?
Thou art more lovely and more temperate:
Rough winds do shake the darling buds of May,
And summer's lease hath all too short a date:
Sometime too hot the eye of heaven shines,
And often is his gold complexion dimm'd;
And every fair from fair sometime declines,
By chance or nature's changing course untrimm'd;
But thy eternal summer shall not fade
Nor lose possession of that fair thou owest;
Nor shall Death brag thou wander'st in his shade,
When in eternal lines to time thou growest:
So long as men can breathe or eyes can see,

So long lives this and this gives life to thee.

 


Baldin í umferðinni

Ég þekki eina fjörgamla konu. Öll hennar börn eru uppkomin fyrir löngu og barnabörnin og jafnvel barnabarnabörnin komin á fót. Sú gamla hefur að mestu legið í nútíma kör undanfarin ár. Hún hefur um árabil talið fjölskyldu sinni trú um að nú væri þetta að verða búið og má segja að allir hafi verið í jarðarfararstartholunum um lengri tíma.

Hún er lítið fyrir að fara af bæ og hefur hingað til verið afar rög að setjast upp í bíl sökum bílhræðslu. Útivist hefur heldur ekki átt við hana og því hefur hún að mestu setið inni við og hlustað á útvarpið.

Nýlega fór að bera á undarlegum persónuleikabreytingum hjá gömlu konunni. Hún er allt í einu orðin sólgin í sólböð og notar hvert tækifæri til að sleikja sólina. Hún er líka orðin æst í bíltúra og hvetur bílstjórana áfram og stefnir þeim eiginlega í hálfgerðan voða með kappsfullum hvatningarorðum: ,,Keyrðu hraðar" ,,Förum aftur í þessa brekku" og þar fram eftir götunum.

En þegar maður hugsar útí það þá er greinilegt hvað hér er á ferðinni. Gamla konan er augljóslega haldin gríðarlegri dauðaþrá.
Og hvernig er þá best að enda þetta? Snúast ekki margar fréttir um skaðsemi sólbaða og slys í umferðinni? það er sennilega ekki hlaupið að því að deyja úr húðkrabbameini en það eru töluverðar líkur á að enda lífið í umferðarslysum eins og umferðarmenningin er á Íslandi.


Ég ætla upp í sveit og ligga ligga lá!

1-ojai Ég er búin að plata Stefán í sveitaferð...ferðinni er heitið í lítið þorp sem heitir Ojai ...borið fram Oh-Hi.

Nokkur þúsund manna bær fullur af gömlum hippum, hílerum, steinanuddurum, grænmetisstöðum,spákerlingum...þangað langar mig að flytja og leiða börnin mín jóðlandi í tröppugangi í fjallshlíðunum. Lítil geitahjörð myndi fylgja okkur við hvert fótmál...

Í Ojai talar fólk víst ekki saman heldur notast aðeins við telepatískt samband því þar eru allir svo andlega sinnaðir. Og fólk nærist eingöngu á því sem fellur til jarðar til að raska ekki andlegri ró ávaxtanna sem vaxa á trjánum. Þar situr fólk undir trjánum og bíður kannski tímunum saman eftir því að trjánum þóknist gefa þeim að borða.

það leggja margir leið sína til Ojai í leit að sjálfum sér.

Ég hef hinsvegar fyrir löngu fundið sjálfa mig og varð við það fyrir töluverðum vonbrigðum þannig að nú leitast ég sífellt við að að finna eitthvað allt annað...eitthvað undarlegt, öðruvísi og framandi!

 


Búið að banna einkadans!

þá get ég aldrei flutt aftur heim til gamla landsins!

Ifirlestur Mogans

við höfum bruðist????

mbl.is Rice: Við höfum bruðist fólkinu í Darfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband