www.thefuriousmindofaserialmom.wordpress.com

gerist nú bloggvinir mínir í nýjum heimkynnum

bestu kveðjur


www.thefuriousmindofaserialmom.wordpress.com

Ég hef ákveðið að byrja aftur að blogga en nú á nýjum stað...

www.thefuriousmindofaserialmom.wordpress.com

vona að ég hitti sem flesta af mínum fornu bloggvinum aftur og að þeir sjái sér fært að verða vinir mínir í nýjum heimkynnum


Hvaða leiðtogaefni á íslenska þjóðin?

Mér sýnast hugmyndir um nýtt lýðveldi vera eina vitið. En þá vantar okkur leiðtoga. Einhverjar hugmyndir?

Við eigum ýmislegt frambærilegt fólk.

Svanhvíti Svavarsdóttur

Bjarna Benediktsson

Benedikt Jóhannesson

Dag. B Eggertsson

svo einhverjir séu nefndir....


Hvaða leiðtogaefni á íslenska þjóðin?

Mér sýnast hugmyndir um nýtt lýðveldi vera eina vitið. En þá vantar okkur leiðtoga. Einhverjar hugmyndir?

Við eigum ýmislegt frambærilegt fólk.

Svanhvíti Svavarsdóttur

Bjarna Benediktsson

Benedikt Jóhannesson

Dag. B Eggertsson

svo einhverjir séu nefndir....


Áramótaávarp Steinunnar Ólínu

Eftir lestur hrútleiðinlegra áramótaávarpa þeirra Geirs og ingibjargar get ég ekki orða bundist

Hugmyndir um nýja ríkisstjórn:

Forsetisráðherra Svanhvít Svavarsdóttir eða Bjarni Benediktsson.

Fjármálaráðherra Þorvaldur Gylfason eða Benedikt Jóhannesson

Menntamálaráðherra Páll Skúlason eða Sigrún Valbergsdóttir

Nýtt!!!!! ráðuneyti menningarmálaráðuneyti
Hrafnhildur Hagalín eða þröstur Helgason,

Heilbrigðisráðherra Dagur B. Eggertsson

Félagsmálaráðherra Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Viskiptaráðherra Svava Johansen eða Halla Tómasdóttir

Dómsmálaráðherra Gestur Jónsson eða Ragnar Aðalsteinsson eða Ragnar H Hall eða Lára V. Júlíusdóttir

leggja niður kirkjumálaráðuneytið þó fyrr hefði verið

Landbúnaðarráðherra Pétur þorsteinsson skólastjóri, fyrrum bóndi og föðurbróðir minn

Sjávarútvegsráðherra Vilhelm Már Guðmundsson útgerðarmaður í Mexíkó.

Utanríkisráðherra Pétur Gunnarsson eða Einar Már Jónsson eða Kolfinna Baldvinsdóttir

Iðnaðarráðherra Jón Sigurðsson hjá Össur

Umhverfisráðherra Björk Guðmundsdóttir


Skyldulesning! Fyrir alla listamenn þjóðarinnar! og alla aðra líka!

 Snilldagrein sem ég rakst á á kistunni frá 18. október...þetta verða allir að lesa!

Fram með höfundinn!

Magnús Þór Snæbjörnsson

 

http://kistan.is/default.asp?sid_id=25401&fre_Id=78217&tid=2&meira=1&Tre_Rod=005|&qsr


Smá viðtal við Stefán Karl !

http://www.boston.com/multimedia/features/2008/ae/theater_arts/grinch/

Kæru bloggvinir nær og fjær


 

Eins og margir vita hefur Stefán Karl um margra ára skeið verið ötull við að vekja athygli á málefnum þeirra sem verða fyrir einelti. Ég ferðaðist með honum vetrarpart fyrir einhverjum árum síðan og var viðstödd fyrirlestra hans fyrir börn og fullorðna. Það sem mér kom kannski mest á óvart hvað börn voru óhrædd við að opna sig um líðan sína þegar Stefán var búinn að brjóta ísinn. Það þarf kjark til að standa á fætur innan um alla skólafélagana og tala um vanlíðan sína. Mikinn kjark og það gerðu þau hispurslaust.

Að sama skapi var eftirminnilegt að heyra fullorðið fólk standa upp í fullum sal af fólki og segja frá því hvernig það hafði verið útskúfað af vinnufélögum eða af samferðafólki í sínum heimabæ.

Eftir að Latibær náði útbreiðslu erlendis og fólk komst á snoðir um starf Stefáns á Íslandi hafa okkur borist ótal fyrispurnir þess efnis hvenær og hvort hann myndi gefa kost á sér til að tala um þessi mál utan landsteinann. Nýverið fengum við hjónin bæði atvinnuleyfi hér í BNA eftir rúmlega fjögurra ára bið og því gefst okkur loksins tækifæri á því að sinna þessu hugðarefni okkar af einhverju viti.

Stefán hefur hlotið afar lofsamlega umfjöllun fyrir hlutverk sitt sem Grinch eða Trölli sem stal jólunum og við hyggjumst nýta okkur þá athygli til að opna augu fólks enn frekar fyrir því alheimsvandamáli sem einelti er.

Af því tilefni vil ég bjóða ykkur velkomin á nýja heimasíðu www.stefankarlfanclub.com

Markmið okkar er að koma á fót netsamfélagi fyrir þolendur eineltis þar sem börn og fullorðnir geta komið saman og eignast vini ...kannski í fyrsta sinn!

Síðan er á byrjunarstigi og við vonumst til að geta séð hana vaxa og dafna og geta gert hana aðgengilega og skemmtilega fyrir þá sem hana heimsækja.

Við erum opin fyrir öllum hugmyndum og myndum þiggja með þökkum ábendingar og umsagnir.

Einnig væri gaman að koma á samstarfi við aðila á Íslandi sem hefðu hag af því að auglýsa á síðu Stefáns. Rétt er að geta þess að gert er ráð fyrir að tæplega 400 þúsund manns muni sjá sýninguna Grinch í Baltimore og Boston og er vefsíðan auglýst kyrfilega í leikskrá.

Að lokum vil ég senda baráttukveðjur til Íslands!

kveðja

Steinunn Ólína

 

 

 


Bara Barak!

Til hamingju með nýjan bandaríkjaforseta!

Nú þarf hallarbyltingu á Íslandi. Burt með ríkistjórnina og á haugana með forsetann!

Minni á áramótaspána hér neðar á blogginu þar sem ég spáði Obama sigri.

Ég tek því eftirleiðis að mér framtíðarspádóma öllum að kostnaðarlausu.

baráttukveðjur!


Bjarg-úlfarnir sýna tennurnar!

Nú kemur í ljós þeirra föðurlandsást. Nákaldir kossar. Í tugthús með þá!
mbl.is Straumur riftir kaupum á félögum Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súpa sem sameinar!

Súpa sem sameinar!

Þegar ég ákveð hvað ég á að hafa í matinn er það afar tengt því hvernig mér líður þá
stundina. Mér finnst leiðinlegt að borða til þess eins að seðja hungrið og því legg ég mikið upp úr því að gefa mér tíma til að matbúa og nota matseldina til að skapa mér næði til þess að velta hlutunum fyrir mér. Í óvissu ástandi eins og ríkir um þessar mundir í heiminum öllum er hætta á því að maður missi sjónir á því sem mikilvægast er í lífinu eða því að treysta fjölskylduböndin og gera sér og sínum til góða.
Og þegar peningar eru af skornum skammti þarf að vanda valið enn betur og hafa í huga hvað má leyfa sér og hverju skal sleppa.
það er ekki erfitt að elda góðan mat fyrir lítinn pening og því langar mig að deila með ykkur uppskrift af lauksúpu sem er sáraeinfalt að matbúa.
Gulbrúni laukurinn sem við þekkjum öll er nefnilega kjarnafæða. Fitusnauður en kolvetnaríkur og fullur af kalki járni og C-vítamíni, sumsé ansi fullkomið sköpunarverk.
Enska orðið onion er dregið af latneska orðinu unio sem þýðir eining og því er lauksúpa vel til þess fallin að sameina fjölskylduna. Hún er hæfilega matarmikil og frábær í haustkuldanum.
Um ágæti lauks hefur ýmislegt verið skrafað, allt frá því að laukur geti aukið hárvöxt til þess að mikið laukát hafi stappað stálinu í hermenn Alexanders mikla því það ku hafa verið trú hans að bragðsterk fæða á borð við lauk gerði menn aflmeiri.
Í tyrkneskum sögum er því lýst að þegar Djöflinum var hent út úr Paradís hafi laukur vaxið þar sem hann steig niður hægra fæti og hvítlaukur sprottið þar sem vinstri fótur hans snerti fyrst jörðu.
Enn er það til í miðausturlöndum að ungir brúðgumar beri innan á jakkaboðungnum ofurlítinn laukbita í þeirri trú að það hafi jákvæð áhrif á frammistöðu þeirra á brúðkaupsnóttina.
    Þegar maður velur lauk þá skal velja þá með hliðsjón af ákveðnum þáttum. Laukurinn skal vera skrjáfandi pappírsþurr að utan og engir sjánlegir myglu eða mjúkir blettir á yfirborði hans. Hann skal vera stinnur viðkomu og þungur í sér. Best er að velja hann í stykkjatali til að koma í veg fyrir að kaupa köttinn í sekknum.
Hafið þið ekki tekið eftir því að það er alltaf eins og það sé eitt skemmt epli í hverjum poka? Vörurýrnum sem bitnar á okkur þegar við erum of löt til að velja hlutina með hægð og forsjálni.
    Veljið fimm til sex fallega bústna lauka og kaupið einn lítra af kjötsoði eða nautakraftsteninga en varist kraftinn frá Knorr nema þið viljið visvítandi eitra fyrir fjölskyldum ykkar með óhóflegri MSG notkun. Fyrir grænmetisætur er rétt að taka fram að grænmetiskraftur er rétt eins brúklegur. Síðan þarf að splæsa í smá bita af Gruyére osti og ef hann er ófánlegur þá bita af Emmenthaler eða góðum Gouda osti.
Ég hef stundum notað Parmesan þegar ég hef ekki átt annað til og raunverulega er hægt að nota þann ost sem til er á heimilinu. Þetta er soldið smekksatriði og sjálfsagt að prófa sig áfram. Síðan þarf til smjör og hveiti, salt og pipar, gamalt myglulaust brauð og hvítlauk. Ég skelli stundum lárviðarlaufi eða afgangs ferskum kryddjurtum útí allt eftir geðþótta.Eftirleikurinn er barnaleikur.
Flysjið laukinn og skerið hann í hálfs sentimetra þykkar sneiðar.
    Allir þekkja það að tárast þegar maður sker lauk. Það virðist aðeins draga úr grenjum ef maður skolar laukinn úr köldu vatni áður en maður sker hann.
Annars er bara tilvalið að gráta svolítið við laukskurð, það ber ekki mikið á því og engin þarf að vita hvers vegna þú grætur í raun og veru.
    Að því búnu skal bræða smjör á pönnu þar til að það snarkar í. Skellið lauknum á pönnuna og látið hann brúnast við vægan hita í allt að þrjátíu mínútur. Gætið þess að hann brenni alls ekki heldur aðeins mýkjist og brúnist.
Þegar hér er komið sögu skal ,,drussa” eins of tveimur matskeiðum af hveiti yfir laukinn og blanda saman með sleif. Síðan hella út í einum líra af soði og setja út í lárviðalauf og tvö pressuð hvítlauksrif og krydda eftir smekk. Láta síðan herlegheitin malla við meðalhita í fjörutíu mínútur.
    Ristið eins margar brauðsneiðar og þarf eða eina á mann. Þessi súpa ætti að nægja fjórum sem aðalmáltíð. Rífið niður ostinn á rifjárni og setjið til hliðar. Hitið ofninn og stillið á grill.
    Meðan súpan mallar er upplagt að spjalla við fjölskyldumeðlimi og ræða atburði líðandi stundar, hjálpa börnum við heimalærdóminn eða setjast bara niður og húka sem er svo afar hollt.
Rétt áður en súpan er borin fram má skella í súpuna vínanda svo sem eins og koníaksleka eða dropa af púrtara ef vill og salta og pipra ef þurfa þykir.
Deilið súpunni bróðurlega í eldfastar skálar og setjið eina ristaða brauðsneið í hvora. Setjið rifna ostinn yfir og skellið súpuskálunum stutta stund inn í ofninn eða þar til osturinn bráðnar. Það tekur aðeins örfáar mínútur.
Kranavatnið er auðvitað langbesti kosturinn þegar kemur að drykkjarföngum en ekki er verra að sulla í sig eins og einu léttvínsglasi með súpunni til að losa um málbeinið og koma blóðinu á hreyfingu.
Verði ykkur að góðu.

Athyglisverð grein um fall íslenskra billjónamæringa í Forbes

http://www.forbes.com/businessbillionaires/2008/10/07/iceland-billionaires-banking-biz-billies-cz_ts_1007iceland.html

101 Lággjaldaflugfélag!

1-1.jpg

Lærum rússnesku!

http://www.geocities.com/colosseum/track/7635/alphabet.html

Hvar eru Kóka-kóla skilti Bjarg-Úlfanna nú?

Eggert Magnússon alias Kóka kóla skilti hvar er hann?

Hvernig er að versla á brunaútsölum Bjarg-úlfur Thor?

Hvernig tilfinning er það að horfa á þjóðarbúið fara á hausinn Bjarg-úlfur Thor?

Það er hættulegt að spila fjárhættuspil, sérstaklega ef maður spilar með sparnað fólksins í landinu !

Ég ætla að vona að Íslenska þjóðin losni sem fyrst úr náðarkrumlu Bjarg-úlfanna!

samúðarkveðjur

 

 


Með baráttukveðjum frá Kalíforníu

Ágætu lesendur,

Mér barst í morgun tölvupóstur þess efnis að vegna niðurskurðar gæti sunnudagsblað Morgunblaðsins ekki keypt af mér frekari pistla og jafnframt var mér tjáð að ekki væri verið að gera athugasemd við störf mín heldur væru þetta óhjákvæmilegar aðgerðir.

Er Árvakur að fara á hausinn? Í eigu Bjarg-úlfanna?

Ég vil þakka lesendum þau miklu viðbrögð og þakkir sem mér hafa borist á undanförnum árum.

Og ég vona að mér muni bjóðast tækifæri til að starfa við Morgunblaðið hjá nýjum eigendum.

Erum við kannski að sjá fram á Ríkis-Moggann?

með allra bestu kveðjum.

 

Steinunn Ólína


Svunta fyrir fólk með sjálfsálit...

http://www.zazzle.com/steinunnolina*

Ég býð öllum í mat...veriði velkomin!

http://www.new.facebook.com/pages/Food-glorious-Food/22972567841

Það er gott að sækja landið heim.

Gestrisni íslendinga á sér lítil takmörk.
mbl.is Fjölskyldu fleygt úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk fánaterta er á boðstólum á öllum betri heimilum

IMG_7301

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband