Íslensk fánaterta er á boðstólum á öllum betri heimilum

IMG_7301

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Umm.. glæsilegt, en hvernig er uppskriftin Steina mín? 

 Kveðjur til LA héðan frá Stjörnusteini inn í sólríkt og gott sumar.

Ía Jóhannsdóttir, 30.6.2008 kl. 19:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvað er ofan á kökunni kona?  Já og gætum við Ía fengið uppskrift?

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 19:33

3 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

svampbotn úr fjórum eggjum bolla af hveiti og 3/4 sykur, vanilludropar. ótæpilega af rauðum matarlit.

hvítur þeyttar með 2/3 sykurs þar til stífar ,rauður þeyttar með 1/3 sykurs og matarlitnum skutla í. rauðum og hvítum blandað varlega saman og hveiti sigtað í.

skellt varlega saman. baka við 175 í 20-30 mín.

bláber og rjómi 

17.júní terta 

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 30.6.2008 kl. 19:41

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jammí svo líkar mér þetta með að skutla, svetta og skella  hehehhe á alveg rosalega vel við mína taktik þ.e.a.s. þegar ég nenni að baka. 

Ía Jóhannsdóttir, 30.6.2008 kl. 20:33

5 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Hrikalega girnileg og þjóðernisleg terta þetta...

Gæti maður líka haft kökuna bláa og sett jarðaber ofaná? Það yrði svona meira samræmi í fánalitunum að hafa bláa litinn í aðal...

Aðalheiður Ámundadóttir, 1.7.2008 kl. 13:07

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Damn, var í Krónunni og fékk áfall yfir verðlaginu og gleymdi rauða matarlitnum.  Hef hana græna í staðinn.  Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.7.2008 kl. 13:17

7 Smámynd: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

jenný þú hefur hana bara í ítölsku fánalitunum græna hvíta og rauða(jarðarber)

ítalía er á hausnum eins og ísland nema þeir hafa lýst yfir neyðarástandi ólíkt spéhræddum íslendingum!

Alla...nema hvað ...allt má 

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 1.7.2008 kl. 20:15

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Girnileg þessi kaka, og áreiðanlega líka góð í Ítölsku fánalitunum. -  Nei Íslendingar viðurkenna ekkert slíkt. - Á hausnum hvað !?!  Þetta er nú bara enn ein haugalygin úr Dönum og Englendingum, sem eru náttúrulega bara asnar og fífl.  - Og Danir enn spældir af því að við erum klárai en þeir. -

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Steina, hún á afmæli í dag. - Hipp hipp húrra. - Til hamingju með daginn SteinOlía mín. -

Og bara hjartanlega til hamingju með þig og fallegu stóru fjölskylduna þína. - 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:12

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ó á bakarinn afmæli?  Til hamingju með daginn

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2008 kl. 01:15

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Smart, virkilega smart. Og sætt fyrir góm.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2.7.2008 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband